Þar sem ég er rosalega lélegur penni...ákvað ég að starta pínu bloggi um lífið hér í Ungverjalandi, bara svo alheimsdrottningar og fjölskyldumeðlimir geti fylgst með mér á erlendum grundvelli.
Nú er ég búin að búa hér rúmlega mánuð og nokkuð búin að koma mér fyrir, fín íbúð, fín staðsetning og ég keypti mér hjól!!!! já hún Hera keypti sér farartæki sem krefst fótafls :o)
Er nú búin að vera frekar dugleg í félagslífinu var busuð síðasta laugardag sem endaði með nokkrum vel völdum marblettum og miklum timburmönnum...okkur var skipt í lið og þurftum við að fara á 6 bari þar sem eldri nemendur biðu okkar með margskonar þrautir sem allar fálu það í sér að við drykkjum mikið áfengi og gerðum okkur að fíflum....ekki leiðinlegt...ég auðvitað endaði í hóp með fjórum karlmönnum og endaði á því að vera sú eina sem uppi stóð eftir stoppin 6 og svo busunina sem fór fram á sóðalegasta bar sem ég hef nokkurn tíma séð...enda er hann aðal hang outið hjá háskólanemum hehehe :o)
Ég ætla að setja svo inn nokkrar sætar myndir af lífinu hér og verð svo dugleg að halda update á eilífu skemmtuninni minni hér í læknanáminu
Tadaaahhh
Doksi
Saturday, October 4, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment